Skilmálar og Persónuverndarstefna
Almennt
Aðgangur og notkun vefverslunarinnar Hvolpasveitin.is (netverslun) er háð eftirfarandi skilmálum. Ef þú ferð á vefsíðuna, skoðar eða leggur fram pöntun samþykkir þú þessa skilmála.
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega þar sem þeir innihalda mikilvægar upplýsingar. Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við Hvolpasveitin.is info@hvolpasveitin.is.
Hvolpasveitin.is áskilur sér rétt til að breyta, fjarlægja eða bæta við vefsíðuna og skilmála þessa án sérstakra tilkynninga. Skilmálarnir sem eru í gildi þegar pöntun er gerð, gilda um viðkomandi pöntun, með öllum þeim breytingum og viðaukum sem kunna að hafa verið gerðir á þeim. Skilmálarnir skulu vera í samræmi við landslög Íslands ,tilskipanir og reglur Evrópska Efnahagssvæðisins eftir því sem við á.
Þessi vefsíða kann einnig að tengjast öðrum vefsíðum sem eru ekki reknar af Hvolpasveitin.is á Íslandi og hefur ekki stjórn á þeim síðum og tekur ekki ábyrgð á þeim né þeim skaða eða tjóni sem gæti orðið við notkun þeirra.
Persónuverndarstefna
Almennt um persónuupplýsingarnar
- Hvolpasveitin.is leggur áherslu á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina sinna.
- Hvolpasveitin.is leggur áherslu á að farið sé með allar persónuupplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga (Persónuverndarlögin).
- Hvolpasveitin.is leggur áherslu á að vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum sé takmörkuð að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem viðskiptavinir biðja um.
- Hvolpasveitin.is leggur áherslu á ábyrga vinnslu upplýsinga um viðskiptavini og að sú vinnsla sé gerð á ábyrgan, öruggan og löglegan hátt.
- Hvolpasveitin.is leggur áherslu á að allar upplýsingar um viðskiptavini sem látnar eru í té eða sóttar með þeirra leyfi til þriðja aðila séu eingöngu sóttar í þeim tilgangi að hægt sé að veita viðskiptavinum þá þjónustu sem þeir biðja um.
- Hvolpasveitin.is leggur áherslu á að viðskiptavinir Hvolpasveitin.is séu eigendur að sínum eigin persónuupplýsingum, hafi einir aðgang að slíkum upplýsingum, ásamt starfsfólki Hvolpasveitin.is og nauðsynlegum þriðju aðilum.
Hvaða persónuupplýsingum söfnum við og hvers vegna?
Þessi kafli lýsir því hvers vegna við söfnum persónulegum upplýsingum, hvaða upplýsingar er unnið með og hvers vegna það er gert.
TIL ÞESS AÐ VINNA MEÐ OG HALDA UTAN UM PANTANIR OG VÖRUKAUP
Unnið er með persónuupplýsingar til þess að:
- afhenda pantaða/keypta vöru eða þjónustu (þ.m.t. tilkynningar um stöðu pöntunar og til að hafa samband vegna spurninga/upplýsinga um afhendingu).
- geta staðfest aldur og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.
- geta staðfest upplýsingar um heimilisfang með tengingu við utanaðkomandi skrár, t.d. Þjóðskrá eða símaskrá.
- hjálpa til við vöruskil, kvartanir og ábyrgðarmál.
Tegundir upplýsinga sem er unnið með:
- Nafn
- Tengiliðaupplýsingar (s.s. heimilisfang, netfang, símanúmer)
- Greiðsluupplýsingar (s.s. upplýsingar um færslur, dagsetningu færslna, númer á More korti).
- Kennitala
- Viðskiptavinanúmer
- Greiðslusaga
- Pöntunarsaga, s.s. hvaða vara var keypt og hvert hún var send
TIL AÐ HALDA UTAN UM ATHUGASEMDIR/KVARTANIR VEGNA ÞJÓNUSTU
Unnið er með persónuupplýsingar til þess að:
- Eiga samskipti við viðskiptavini í gegnum rafræna miðla (þ.m.t. samskiptamiðla)
- Gera okkur fært að auðkenna viðskiptavini.
- Gera okkur fært að rannsaka kvartanir og geta stuðst við gögn (m.a. með hjálp tækninnar).
Tegundir upplýsinga sem er unnið með:
- Nafn
- Tengiliðaupplýsingar (s.s. heimilisfang, netfang, símanúmer)
- Bréf, tölvupóstar, símaskilaboð eða aðrar upplýsingar veittar vegna athugasemdar/kvörtunar.
- Upplýsingar um kaupdag, staðsetningu vörukaupa eða vörugalla/kvartanir.
- Notandaupplýsingar frá netaðgangi, t.d. þegar viðskiptavinur á í vandræðum með að innskrá sig.
- Tækniupplýsingar frá þínum tækjum.
- Kennitala
TIL AÐ UPPFYLLA LAGALEGAR SKYLDUR
Unnið er með persónuupplýsingar til þess að:
- Uppfylla lagalegar skyldur, eins og lög á hverjum tíma krefjast, skv. dómsúrskurði eða annað álíka. Slíkar skyldur geta t.d. varðað öryggisskuldbindingar vegna vöru og því gætum við þurft að láta af hendi samskipti eða upplýsingar til almennings og/eða viðskiptavina, er varða ábendingar um vörur eða innköllun vara, t.d. vegna galla eða áhrifa á heilsu.
Tegundir upplýsinga sem er unnið með:
- Nafn
- Tengiliðaupplýsingar (s.s. heimilisfang, netfang, símanúmer)
- Bréf, tölvupóstar, símaskilaboð eða aðrar upplýsingar veittar af viðskiptavini
- Upplýsingar um kaupdag, staðsetningu vörukaupa eða vörugalla/kvartanir.
- Notandaupplýsingar frá netaðgangi
- Kennitala
- Greiðsluupplýsingar
TIL ÞESS AÐ FYRIRBYGGJA MISNOTKUN Á ÞJÓNUSTU EÐA TIL AÐ RANNSAKA OG KOMA Í VEG FYRIR GLÆPI GEGN FYRIRTÆKINU
Unnið er með persónuupplýsingar til þess að:
- Rannsaka eða koma í veg fyrir svik eða aðra misnotkun t.d. skrásetning tilvika í verslunum.
- Koma í veg fyrir ruslpóst, áreiti, innskráningar án leyfis eða aðrar óleyfilegar aðgerðir.
- Vernda og bæta tölvu- og tækniumhverfi gegn árásum
Tegundir upplýsinga sem er unnið með:
- Vörukaupa- og notkunarupplýsingar (t.d. smellir á vefsíðu og vefflettingar).
- Kennitala
- Myndbandsupptökur úr öryggismyndavélum.
- Tæknilegar upplýsingar sem snúa að þeim tækjum sem notuð eru og stillingar, s.s. tungumálastillingar, IP tölur, vafrastillingar, tímabelti, stýrikerfi, skjástillingar o.fl.
- Upplýsingar um hvernig rafrænar þjónustur okkar eru notaðar.
Smákökur (cookies)
Það eru tvær tegundir af smákökum. Ein geymir textaskrá í ákveðinn tíma, þar til hún rennur út. Tilgangur hennar er t.d. að segja þér hvað hefur gerst frá því þú heimsóttir síðast. Hin tegundin er svokölluð session cookie, sem hefur ekki dagsetningu. Textaskráin er vistuð tímabundið, á meðan þú ert á vefsíðu og gæti t.d. hjálpað til við að muna tungumálið sem þú ert að nota. Um leið og vafranum er lokað, eyðist textaskráin.
Á Hvolpasveitin.is.is notum við smákökur til að halda utan um það hvað þú hefur sett í vörukörfuna. Við notum líka smákökur til að halda utan um tölfræði, til þess að hjálpa við þróun síðnanna. Þeim upplýsingum er safnað í samstarfi við þriðja aðila.
Vefkerfið sem vefsíður Hvolpasveitin.is byggja á og viðbætur við það kunna einnig að notast við smákökur til að bæta upplifun viðskiptavina.
Til þess að notast við vefsíður okkar þarf að samþykkja smákökur. Þú getur gert það í stillingum vafrans sem þú notar. Ef þú gerir það ekki, þá getur verið að vefsíðurnar virki ekki sem skyldi.
Bókhaldsgögn
Bókhaldsgögn Hvolpasveitin.is eru vistuð í samræmi við öryggiskröfur persónuverndarlaganna og laga um færslu bókhalds og varðveislu þess. Geymsla og vistun slíkra upplýsinga miðast við lög þess efnis.
Takmörkun ábyrgðar
Að því marki sem gildandi lög heimila, ber Hvolpasveitin.is enga skaðabótaábyrgð vegna atvika sem upp kunna að koma vegna þess hvernig þjónustan er notuð eða hún útveguð, nema ef hægt er að rekja slík atvik til stórfeldrar/vítaverðrar vanrækslu eða misferlis af ásetningi af hálfu Hvolpasveitin.is.
Hvolpasveitin.is ber enga ábyrgð á töfum sem verða á þjónustunni eða því að þjónustan virki ekki sem skyldi vegna óviðráðanlegra atvika.
Lög og lögsaga
Þessi persónuverndarstefna fellur undir íslensk lög. Leysa skal úr ágreiningi sem kann að rísa eða í tengslum við persónuverndarstefnuna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur ef ekki er hægt að leysa úr honum á annan hátt.
Samþykki þitt
Með því að nota síðuna okkar samþykkir þú persónuverndarstefnu okkar og breytingar sem kunna að verða á henni.
Ef persónuverndarstefnu okkar verður breytt mun dagsetningunni hér að neðan verða breytt.
Þessari persónuverndarstefnu var síðast breytt 19. Nóvember 2021.
Hafðu samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna varðandi þessa persónuverndarstefnu með því að nota upplýsingarnar hér að neðan.
Hvolpasveitin.is
info@hvolpasveitin.is
Kaupskilmálar
Hvolpasveitin.is samþykkir aðeins pantanir sem gerðar eru af vefsíðu fyrirtækisins. Ekki er hægt að taka á móti pöntunum í síma, tölvupóst eða með bréfapósti. Þjónusta á Facebook síðu Hvolpasveitin.is á Íslandi er háð þeim skilyrðum sem fram koma hér á eftir.
Til að leggja fram pöntun á vefsvæðinu verður þú að vera 16 ára, búsett/ur á Íslandi og/eða með íslenskt heimilisfang. Þú gefur upp afhendingar- og tengiliðsupplýsingar (eins og tölvupóstfang og farsímanúmer). Þetta má gera annaðhvort á innkaupahluta síðunnar eða með því að skrá þig á „Mínar síður“ á vefsíðunni.
Vörur sem eru settar í innkaupakörfuna eru ekki fráteknar fyrr en pöntunin er staðfest af Hvolpasveitin.is með pöntunarstaðfestingu sem er send á netfangið þitt.
Samningur og staðfesting á pöntun
Þegar pöntun er afgreidd á vefsíðunni er kominn á bindandi samningur um kaup eftir að Hvolpasveitin.is hefur staðfest pöntunina í tölvupóstfangið sem þú gafst upp. (Pöntunarstaðfesting). Pöntunarstaðfestingin er send á netfangið þitt þegar Hvolpasveitin.is hefur skráð pöntunina og fengið greiðslu. Pantanir skráðar á föstudögum, laugardögum, sunnudögum og öðrum helgidögum verða staðfestar eigi síðar en næsta virka dag.
Verðlagning og gjaldmiðill
Verð eru sýnt í íslenskum krónum (ISK) á vefsíðunni og er með vsk . Verð getur breyst og tilboð má afturkalla hvenær sem er.
Uppgefið verð við pöntun gildir um allt kaupferlið.
Afsláttar- og kynningarkóðar
Hvolpasveitin.is getur tímabundið boðið kynningarverð og afslátt, með eða án kynningarkóða
Afslættir með kóða eru almennt eingöngu gildir einu sinni og þegar kóðinn er notaður verður hann óvirkur og því ekki lengur gildur.
Ekki er hægt að bæta við afslætti í pöntun eftir að hún er staðfest. Þess vegna þarf að tryggja að allar upplýsingar um slíkt séu skráðar áður en pöntun er staðfest og greidd. Hvolpasveitin.is tekur ekki ábyrgð á kynningum sem birtar eru á vefsíðum þriðja aðila.
Hvolpasveitin.is áskilur sér rétt til að afturkalla afslátt, kynningarverð eða kynningarkóða hvenær sem er.
Kynningarafslættir, aðrir afslættir eða kynningarkóðar í prentuðu eða stafrænu formi gilda ekki með öðrum tilboðum nema annað sé skýrt tekið fram. Hvolpasveitin.is áskilur sér því rétt til að ógilda pöntun viðskiptavinarins ef misnotkun af markaðsátaki eða kynningum verður vart
Greiðsla
Hvolpasveitin.is vefverslun samþykkir eftirfarandi greiðslumáta fyrir pantanir:
Kredit- / debetkort
Þegar greiðsla er framkvæmd með kredit- eða debetkorti (VISA, Mastercard, Maestro eða American Express) er greiðslan skuldfærð þegar í stað og heimild fæst.
Allar greiðslur sem eru gerðar með kredit- eða debetkorti eru gerðar með öruggum greiðsluþjónustuveitanda (PSP) sem notar SSL (Secure Sockets Layer) í dulkóðuðu formi sem veitir viðskiptavinum öryggi í samræmi við alþjóðlega öryggisstaðal PCI DSS .
Allir kredit- og debetkortakorthafar gangast undir skilmála kortaútgefanda. Ef útgefandi tiltekins kredit- eða debetkorts neitar að heimila greiðslu til Hvolpasveitin.is, berast þér skilaboð þar sem fram kemur að greiðsluna sé ekki hægt að framkvæma. Hvolpasveitin.is ber ekki ábyrgð á töfum eða synjun á því að vara sé afhent sé það rakið til synjunar á korti eða heimild.
Afhending
Hvolpasveitin.is afgreiðir pantanir eins fljótt og auðið er.
Þegar pöntun er send frá vörugeymslu okkar færð þú senda staðfestingu með upplýsingum um hvernig á að fylgjast með sendingunni.
Skilaréttur
Skilafrestur er 30 dagar frá þeim degi sem pöntunin barst til þín.
Hvernig á að skila vöru:
Þú getur hætt við pöntunina þína innan 14 daga frá móttöku pöntunar.
Samkvæmt lögum ber þér að gæta þess að varan sé í lagi á meðan hún er í þinni vörslu og berð ábyrgð á skemmdum meðan á flutningi stendur.
Endurgreiðslur
Ef hætt er við pöntun innan 14 daga frá móttöku vörunnar fæst full endurgreiðsla án sendingarkostnaðar.
Hvolpasveitin.is mun endurgreiða þér eins fljótt og auðið er.
Við munum endurgreiða með sama greiðslumáta og þú notaðir við upphafleg viðskipti, nema þú hafir samið sérstaklega um það með öðrum hætti. Enginn aukakostnaður leggst á endurgreiðsluna vegna skila eða ef hætt er við af hálfu Hvolpasveitin.is
Tilkynning um galla
Við skoðum vandlega hverja sendingu fyrir afhendingu til þín. Ef vörurnar eru samt sem áður rangar, skemmdar eða gallaðar við komu til þín, skal Hvolpasveitin.is ráða bót á gallanum án endurgjalds með því að skipta um slíkar vörur með nýjum vörum, án aukakostnaðar.
Ef um er að ræða rangar, skemmdar eða gallaðar vörur, ertu vinsamlegast beðin(n) um að hafa samband við info@hvolpasveitin.is
Tilkynning á gallaðri vöru verður að vera innan 2 eða 5 ára frá móttöku vöru samanber 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003
Ábyrgð
Vörurnar sem seldar eru á Hvolpasveitin.is eru eingöngu ætlaðir til einkanota. Þú samþykkir að nota ekki vörurnar í viðskiptalegum tilgangi eða til endursölu og tökum ekki ábyrgð á tapi, hagnaði, truflun fyrirtækja eða missi viðskiptatækifæra. Óheimilt er að afrita, hlaða niður, geyma, senda eða annað af svipuðum toga sem tengist texta og myndum sem birtar eru á Hvolpasveitin.is í neinum tilgangi án skriflegs leyfis Hvolpasveitin.is á Íslandi. Hvolpasveit.is er ekki ábyrgt fyrir neinum skekkjum í texta eða myndum. Hvolpasveitin.is ber enga ábyrgð á neinum töfum sem verða á afhendingu pantana vegna utanaðkomandi atburða , þ.mt en ekki takmarkað við stríð, flóð, eldsvoða, vinnudeilur, verkföll, uppþot, óeirðir , opinberar aðgerðir eða aðra svipaða atburði.
Hvolpasveitin.is leitast við að lýsa nákvæmlega vörum og myndum á Hvolpasveitin.is en það gætu verið minniháttar litabreytingar á milli mynda og raunverulegra vara vegna fjölda þátta eins og vafra sem er notaður eða litaskjástillinga. Hvolpasveitin.is er ekki ábyrgt fyrir mismunandi litum vegna fyrrnefndra þátta.
Hvolpasveitin.is á rétt á að trufla/stöðva notkun Hvolpasveitin.is hvenær sem er, t.d. vegna viðhaldsaðgerða.
Breytingar á skilmálum
Ef við ákveðum að breyta eða uppfæra skilmála okkar verður dagsetningu hér að neðan breytt.
Skilmálum var síðast breytt 19.11.2021
Úrskurðaraðili vegna ágreinings á sviði neytendamála er kærunefnd vöru- og þjónustukaupa - Borgartúni 21 - www.kvth.is
Rekstraraðili vefverslunarinnar Hvolpasveitin.is
Hulda Hildibrandsdóttir
Netfang: info@hvolpasveitin.is